logo

Kynfræðslukistan

img
3 mín

112 - Ofbeldi í nánum samböndum

Safn af greinum um mismunandi tegundir ofbeldis í nánum samböndum. Þar á meðal vanræksla, eltihrellir og andlegt, líkamlegt, stafrænt, fjárhagslegt, trúar-, heiðurs- og kynferðisofbeldi. Greinaranar eru mislangar en ættu að taka um 3 mínútur að lesa og í einhverjum greinum má finna myndband þar sem fólk deilir reynslusögum.

img
20 mín

112 - Þekkir þú ofbeldi?

Nítján dæmisögur um fólk í alls kyns erfiðum aðstæðum. Góð þjálfun fyrir nemendur í að greina á milli ofbeldis og slæmra samskipta en um leið kynnast ólíkum birtingarmyndum ofbeldis.

img
4 mín

112- Kynferðislegt ofbeldi og áreitni

Safn af greinum frá Neyðarlínunni um kynferðislegt ofbeldi og áreitni. Þar á meðal stafrænt kynferðisofbeldi, nauðgun, byrlun, tælingu og áreitni. Greinarnar ættu að taka um 4 mínútur að lesa.

img
4 mín

Aðstoð fyrir brotaþola

Listi yfir úrræði í boði fyrir öll sem búa við ofbeldi eða hafa orðið fyrir ofbeldi, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Mikilvægt er að kynna helstu úrræði fyrir nemendum svo þeir séu meðvitaðir um aðstoð sem stendur þeim, eða einhverjum sem þau þekkja, til boða.

img
6 mín

Alls kyns um kynferðismál

Alls kyns um kynferðismál er teiknuð stuttmynd um ýmsar hliðir kynferðismála. Þar á meðal hugtök eins og kyn, kynvitund, kynhneigð og kynlíf. Stiklað er á stóru og hentar myndbandið því vel sem kveikja fyrir frekari umfjöllun.

img
3 mín

AMAZE - Are you ready to have sex?

Stutt myndband frá AMAZE sem sýnir hvernig hægt er að nálgast fyrstu upplifun sína af kynlífi og hvað er gott að hafa í huga.

img
2 mín

AMAZE - Consent explained

Stutt myndband frá AMAZE sem útskýrir grundvallaratriði varðandi samþykki.

img
2 mín

AMAZE - Healthy vs. unhealthy relationships

Stutt myndband sem skýrir muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samböndum með dæmum.

img
4 mín

AMAZE - Porn is not sex ed

Stutt myndband frá AMAZE sem leggur áherslu á þær ranghugmyndir sem finna má í klámi og undirstrikar að klám sé ekki kynfræðsla.

img
2 mín

AMAZE - Porn, fact or fiction?

Stutt myndband frá AMAZE sem fjallar um gerð kláms, þau brögð og brellur sem notaðar eru sem ekki má mistúlka sem raunveruleika.

img
2 mín

AMAZE - Relationships and technology

Stutt myndband frá AMAZE um nethegðun og samskipti á netinu - þá sérstaklega í samböndum.

img
2 mín

AMAZE - What is sexual harrasment

Stutt myndband frá AMAZE sem skilgreinir kynferðislega áreitni og hvernig best er að bregðast við.

img
2 mín

AMAZE - What makes a relationship healthy?

Stutt myndband frá AMAZE sem skýrir muninn á einkennum heilbrigðs og óheilbrigðs sambands.

img
4 mín

AMAZE - Wise on the web

Stutt myndband frá AMAZE sem fjallar um mikilvægi þess að vera skynsamur og gagnrýninn notandi internetsins.

img
4 mín

Ástráður - Klám

Umfjöllun Ástráðs um klám og áhrif kláms ásamt svörum við algengum spurningum.

img
20 mín

Ástráður - LGBTQIA

Grein á Ástráði sem tekur saman helstu skilgreiningar og flokkun á hinsegin hugtökum. Kynhneigð, kynvitund og intersex eru meðal annars útskýrð í stuttu máli. Mikilvægt er að kennari kynni sér hinsegin hugtök vel og fjalli um hinsegin fólk í allri kynfræðslu. Sömuleiðis er gott að fara yfir hugtökin og skilgreiningar með nemendum.

img
2 mín

Ástráður - Samskipti

Hnitmiðuð umfjöllun frá Ástráði um samskipti í kynlífi og fyrsta skiptið sem er oft ofarlega í huga fólks á unglinsárunum.

img
3 mín

Ástráður - Samþykki

Undirsíða um samþykki í umfjöllun Ástráðs um samskipti. Útskýring á samþykki, þvinguðu samþykki og samþykki í netheimum í stuttu máli á íslensku.

img
12 mín

Ástráður - Sjálfsfróun

Grein frá Ástráði um sjálfsfróun, fullnægingu og kynlífstæki.

img
5 mín

Áttavitinn - Gaslýsing

Grein á Áttavitanum sem kafar dýpra í skilgreiningu á tegun andlegs ofbeldis sem kallast gaslýsing.

img
10 mín

Áttavitinn - Klám og raunveruleiki

Fyndin grein á Áttavitanum um 7 mýtur úr klámi sem eiga ekki við um raunveruleikann.

img
3 mín

Áttavitinn - Mýtur um sjálfsfróun

Grein á Áttavitanum sem útskýrir mýtur um sjálfsfróun sem leynast í samfélaginu og geta haft skaðleg áhrif á viðhorf fólks.

img
5 mín

Áttavitinn - Stafrænt kynferðisofbeldi

Stutt grein á Áttvitanum sem kafar dýpra í stafrænt kynferðisofbeldi.

img
20 mín

Fáðu já!

Fræðslumyndband um muninn á kynlífi og ofbeldi. Tilgangur stuttmyndarinnar er að vega upp á móti áhrifum klámvæðingar, brjóta ranghugmyndir á bak aftur og innræta sjálfsvirðingu í nánum samskiptum.

img
15 mín

Fávitar

Fávitar er átak gegn stafrænu og kynferðisofbeldi sem stofnað var af Sólborgu Guðbrandsdóttur. Á Instagram síðunni @favitar eru skjáskot af óviðeigandi skilaboðum sem sýnir hversu útbreidd slík samskipti eru í netheiminum og dæmi um hvernig á ekki að haga sér á netinu. Sömuleiðis má finna alls kyns gagnlegar upplýsingar á síðunni en þær hafa einnig verið gefnar út í 3 Fávita bókum sem má gjarnan benda nemendum á.

img
5 mín

Fumble - People with disabilities have sex

Grein frá Fumble sem fjallar um þær mýtur og ranghugmyndir sem leynast í samfélaginu varðandi fatlað fólk og kynlíf.

img
3 mín

Fumble - Virginity myths

Grein frá Fumble sem útskýrir alls kyns mýtur um hreinleika, eða meydóm og sveindóm, sem leynast í samfélaginu og gefa fólki ranghugmyndir um kynlíf.

img
5 mín

Gátlisti - Er ég tilbúin að stunda kynlíf?

Gátlisti sem hentar vel fyrir ungt fólk sem veltir fyrir sér hvenær þau eru tilbúin að byrja að stunda kynlíf með öðrum. Gott ef kennari bendir nemendum á listann sem þau geta notað að vild.

img
2 mín

Heilsuvera - Heilbrigð sambönd

Stutt grein frá Heilsuveru um framkomu í heilbrigðu sambandi, góð samskipti og heiðarleika.

img
2 mín

Heilsuvera - Þetta ættir þú að vita um kynlíf

Grein á Heilsuveru með svörum við algengum spurningum varðandi kynlíf.

img
20 mín

Hinsegin frá Ö til A

Hinsegin frá Ö til A er frábær fræðsluvefur fyrir alla sem vilja kynna sér hinsegin málefni, orð og hugtök hinsegin regnhlífarinnar og margt fleira. Mikilvægt að kennarar kynni sér hinseginleikann vel og tryggi umfjöllun um hinsegin fólks í allri kynfræðslukennslu.

img
4 mín

Is Sexual Consent More Complicated Than A ‘Yes’ or ‘No’?

Grein á Fumble sem fjallar um skilgreiningar á samþykki, að verða fyrir þrýstingi og hvers vegna það getur verið erfitt að segja nei.

img
31 mín

Klám, klámvæðing og kynlífsmenning

Hálftíma langt myndband frá Mixtúru sem er fullt af fróðleik um klám, klámvæðingu og kynlífsmenningu. Greint er frá niðurstöðum raunverulegra rannsókna á skaðlegum áhrifum klámáhorfs sem birtast m.a. í samskiptum, kynlífshandriti ungs fólks og auknu ofbeldi.

img
3 mín

Love is respect - How to set boundaries

Safn stuttra greina á Love is respect sem skýra hvernig hægt er að setja mörk fyrir sjálfan sig, hvort sem þau eru líkamleg, tilfinningaleg eða stafræn.

img
3 mín

Love is respect - Intimate relationships

Grein frá Love is respect með lista af góðum ráðum varðandi náin sambönd og mikilvægi samskipta í samböndum og kynlífi.

img
2 mín

Porn Sex vs Real Sex: Explained With Food

Stutt myndband frá KB creative lab sem sýnir dæmi um muninn á kynlífi og klámi með matvælum.

img
2 mín

Relationship spectrum

Sambandsróf frá Love is respect sem hægt er að prenta út eða sýna á skjá.

img
17 mín

Samþykki er sexý!

Bæklingur frá Samþykkishópnum og Femínistafélagi Íslands með gríðarlega nytsamlegum upplýsingar um samþykki. Tilgangur bæklingsins er að uppræta mýtur, hugmyndir um kynhlutverk og sanna að samþykki er sexý og nauðsynlegt!

img
3 mín

Sjúk ást - Heilbrigð sambönd

Safn greina á Sjúk ást sem fjalla um heilbrigð sambönd, samskipti, mörk, traust og virðingu. Greinarnar eru hnitmiðaðar og ættu að taka um 3 mínútur að lesa.

img
2 mín

Sjúk ást - Klám

Á sjukast.is má finna umfjöllun um klám en hún skiptist í áhrif kláms, munurinn á kynlífi og klámi, klámvæðingu og kynheilbrigði. Greinarnar eru stuttar og laggóðar og henta vel í kennslu um klám og margvísleg áhrif þess.

img
4 mín

Sjúk ást - Klám vs. raunveruleiki

Myndband frá Sjúk ást með fyndnum reynslusögum í tengslum við muninn á klámi og raunveruleikanum

img
10 mín

Sjúk ást - Kynlíf

Safn af greinum um kynlíf, samþykki og algengar mýtur. Hægt að lesa um grundvallar atriði til að hafa í huga þegar kemur að kynlífi sem og mýtur og staðreyndir um kynlíf. Mikilvægi samskipta, samþykkis og að virða mörk undirstrikuð. Áætlað er að það taki undir 10 mínútur að lesa hverja grein.

img
6 mín

Sjúk ást - Ofbeldi & sambönd

Níu innihaldsríkar greinar á sjukast.is sem fjalla um ofbeldi í samböndum. Þar getur þú lesið þig til um hvers vegna fólk beitir ofbeldi og á erfitt með að fara úr ofbeldissamböndum. Einnig getur þú kafað dýpra í helstu tegundir ofbeldis, þ.e.a.s. andlegt, líkamlegt, stafrænt, fjárhagslegt og kynferðisofbeldi.

img
3 mín

Sjúk ást - Óheilbrigð sambönd

Safn greina á Sjúk ást sem fjalla um óheilbrigð sambönd. Meðvirkni, stafræn samskipti, afbrýðissemi o.s.frv. Greinarnar eru hnitmiðaðar og ættu að taka um 3 mínútur að lesa.

img
6 mín

Sjúk ást - samskipti og samþykki

Skemmtilegt myndband frá Sjúk ást með reynslusögum sem tengjast samskiptum í kynlífi og samþykki.

img
6 mín

Sjúk ást - Samþykki

Undirsíða á sjukast.is um samþykki, hvað það er og hvað það er ekki, sem og hvernig þú tryggir samþykki. Neðst á síðunni er einnig 3:30 mínútna myndband með skemtilegum frásögnum í tengslum við samþykki og samskipti.

img
3 mín

Sjúk ást - Sjálfsfróun & að þekkja eigin mörk

Stutt myndband frá Sjúk ást með skemmtilegum reynslusögum í tengslu við sjálfsfróun og að þekkja sjálfan sig. Hentar vel sem kveikja.

img
5 mín

Sjúk ást - Sjúkt spjall

Sjúktspjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða áhyggjur af samböndunum sínum, samskiptum eða ofbeldi og er gagnlegt að kynna fyrir nemendum. Á instagramsíðu þeirra má einnig finna alls kyns myndir og myndbönd um sambönd, samskipti og mörkin á milli heilbrigðs og óheilbrigðs - sem nýtast vel í umræðu um sambönd og væntingar.

img
9 mín

Sjúk ást - Talið saman í rúminu

Góð grein frá Sjúk ást um hvað það er sem einkennir samskipti í heilbrigðu sambandi og hvað er gott að hafa í huga þegar kemur að kynlífi.

img
5 mín

Stígamót - Klámspjall

Greinar á vef Stígamóta sem ætlaðar eru foreldrum sem vilja ræða við börnin sín um klám. Greinarnar eru þó gríðarlega fróðleiksfullar fyrir alla sem vilja fræða börn og unglinga um áhrif kláms. Það ætti að taka um 5 mínútur að lesa hverja grein.

img
3 mín

Tea consent

Stutt myndband frá Blue Seat Studio sem lýsir samþykki með samanburði við að bjóða einhverjum upp á te bolla.

img
3 mín

Vika 6 - Fræðslumyndbönd

Í tilefni Viku 6 á vegum Jafnréttisskólans hefur hann staðið fyrir gerð stuttra fræðslumyndbanda sem fjalla um kynlíf og kynvitund ungs fólks. Myndböndin eru í kringum 2 mínútur og henta því fullkomlega sem kveikja fyrir kennslustund.

img
8 mín

Villainesse - Consent

The Real Sex Talk er safn af myndböndum frá Villainesse en í þessu myndbandi er fjallað um samþykki - hvernig við veitum og tryggjum áhugasamt samþykki.

img
12 mín

Villainesse - Pleasure & Masturbation

The Real Sex Talk er safn myndbanda frá Villainesse um viðfangsefni kynfræðslunnar. Í þessu myndbandi er fjallað um sjálfsfróun, að kynnast eigin líkama og njóta.

img
10 mín

Villainesse - Porn

The Real Sex Talk er safn af myndböndum frá Villainesse um viðfangsefni kynfræðslunnar. Í þessu myndbandi er fjallað um klám, áhrif kláms og staðalmyndir.

img
10 mín

Villainesse - Respect, Relationships & Peer Pressure

The Real Sex Talk er safn af myndböndum frá Villainesse um viðfangsefni kynfræðslunnar. Í þessu myndbandi er fjallað um sjálfsvirðingu og virðingu fyrir öðrum, höfnun, fjölbreytt sambönd og hópþrýsting.

img
10 mín

Villainesse - The first time

The Real Sex Talk er safn myndbanda frá Villainesse um viðfangsefni kynfræðslunnar. Í þessu myndbandi deila einstaklingar reynslusögum og líðan varðandi fyrstu reynslu þeirra af kynlífi og deila góðum ráðum.

logo

Kynfræðslukistan © 2025